Menu Close

Glernámskeið með Nóa Þór Alhalel – Grunnnámskeið 13 – 15 október

25.000 kr.

Á þessu grunnnámskeiði er gert ráð fyrir að þátttakendur öðlist góða kunnáttu í að búa til stained glass glerverk, svo sem styttur eða skrautmuni.
Markmiðið er að efla færni og öryggi við meðhöndlun glerja og verkfæra, meðal annars með því að læra að nota slípur (súðara).
Ég mun leiðbeina um hvað sé hægt að búa til, en gert er ráð fyrir að hver þátttakandi fari heim með 1–3 fullunna hluti, eftir því hve einföld eða krefjandi verkefnin verða fyrir hvern og einn.

Mánudagur 13 okt og miðvikudagur 15 október frá kl 17:30 – 20:30

Vöruflokkur
Deila

Upplýsingar

Fyrsti tími – Grunnurinn
Við byrjum á að læra að skera gler með glerhníf. Fyrst æfum við að skera beinar línur, síðan hringi og loks óbeinar línur. Það er mjög mikilvægt að ná góðri stjórn á glerhnífnum. Á þessum áfanga verður lögð áhersla á öryggi: alltaf skal nota hanska og öryggisgleraugu, þar sem gler getur verið varasamt.
Eftir skurðinn lærum við að pússa brúnir glerbitanna. Með því verður hægt að fjarlægja hvassar brúnir, sem gerir það öruggara að vinna án hanska í næstu skrefum.

Annar tími – Samsetning og lóðun
Við byrjum á að hreinsa alla glerbitana til að fjarlægja fitu og óhreinindi. Síðan er koparteip (copper masking tape) notað til að líma yfir allar brúnir glerbitanna.
Þegar það er komið á, förum við yfir brúnirnar með sérstökum verkfærum til að festa teipið betur.
Að því loknu hefst skemmtilegasti hlutinn – lóðunin! Þá notum við blýlaust lóðmálm og flux til að festa glerbitana saman. Þar sem unnið er með hita er sérstaklega mikilvægt að nota hlífðargleraugu og gæta fyllsta öryggis.
Ég hlakka til að vinna með ykkur og sjá fallegu verkin sem þið búið til.

Ekki er tekin ábyrgð á innsláttarvillum.
Verð geta breyst án fyrirvara.