Menu Close

Leirnámskeið 16 – 25. september 2025 – Gestakennari Ólafur Hilmarsson

49.000 kr.

Námskeiðið er haldið í þrjá daga, frá klukkan 17:00-20:30.

Kennari: Ólafur Hilmarsson (ÓliHilm)

Allt efni innifalið

Dagur 1 – 16. september
Stutt kynning og létt yfirferð á aðferðum við leirmótun.
Unnin verða skemmtileg verkefni út frá hugmyndum Óla.

Dagur 2 – 18. september
Nemendur vinna að eigin hugmyndum með aðstoð eftir þörfum.
Lögð áhersla á frjálsa nálgun og persónulega sköpun.

Dagur 3 – 25. september
Glerjun og lokavinna á verkum.

 

Vöruflokkur
Deila

Upplýsingar

Kennari er Ólafur Hilmarsson (ÓliHilm)
Óli er menntaður húsasmíðameistari og kennari sem hefur kennt listgreinar, að mestu leirlist, í um 10 ár. Samhliða kennslunni hefur hann unnið að sinni eigin leirlist undir nafninu ÓliHilm, þar sem hann hannar og rennir öll sín verk sjálfur og er hver munur einstakur á sinn hátt. Leirvinnan er fyrir Óla eins og óvænt ferðalag þar sem óteljandi möguleikar búa í náttúrulegum eiginleikum leirsins. Óli nýtir smíðafærni sína til að forma og skera leirinn með mikilli nákvæmni líkt og í trésmíði.

Óli hefur komið að mörgum hönnunar og samstarfsverkefnum, má þar m.a. nefna samstarfsverkefni með Lavazza á Íslandi í Hagkaup Smáralind og hönnun og gerð hinna mikilvægu Míuverðlauna 2024 sem ætluð eru til að heiðra þá einstaklinga sem koma að þjónustu langveikra barna. Handverk Óla má m.a. finna á vefsíðu hans www.olihilm.com og í Bjarni Sigurðsson Gallery, Skólavörðustíg 41 101 Reykjavík.

Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki (sjá t.d. www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum