Menu Close

Almennt
Heildverslunin Glit ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Ef ekki er næg þátttaka á námskeið þá fellur það niður og mun GLIT ehf hafa samband ef til þess kemur.

Afhending vöru
Ef vara er til verður hún send með Íslandspósti innan 2 daga. Allar pantanir sem berast eftir klukkan 15:00 fara í póst daginn eftir. Ef til þess kemur að vara er uppseld og það þarf að framleiða vöruna þá munum við láta vita hvenær varan verður send. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Ef um mikið magn er að ræða verður pöntunin send með flutningafyrirtæki. Heildverslunin Glit ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Heildverslunin Glit ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda og þarf því kaupandi að hafa samband við flutningsfyrirtækið.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Heildverslunin Glit ehf með spurningar.

Ekki er endurgreitt staðfestingargjald fyrir keramiknámskeið. Ef ekki er mætt á þeirri dagssetningu sem búið er að skrá sig á þá er ekki endurgreitt staðfestingargjaldið sem greitt er á síðunni.

Ef upp koma forföll á námskeið og þau tilkynnt þá getur viðskiptavinur valið sér annan námskeiðisdag.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.