Leirbrennsluþjónusta hjá Glit
Við hjá Glit bjóðum upp á leirbrennslu fyrir almenning – hvort sem þú ert byrjandi í keramik eða vanur listamaður.
Við bjóðum bæði:
- Hrábrennslu (bisque firing)
- Gljábrennslu (glaze firing)
Hvernig virkar þetta?
- Komdu með verkin þín
Þú mætir með leirmunina til okkar á opnunartíma (sjá neðar). Við tökum á móti þeim og skráum þau inn. - Við brennum
Við sjáum um örugga og faglega brennslu í leirbrennsluofni við viðeigandi hita. - Þú færð SMS þegar leirmunir er tilbúnir
Þegar brennslan er lokið færðu SMS frá okkur og getur sótt hlutina þína.
Verðskrá
Verðið fer eftir stærð og magni verka – við reiknum það út þegar brennslu er lokið.
- Verðið fer eftir fjölda hluta og stærð þeirra.
- ATHUGIÐ lágmarksgjald er hálf hilla.
- Minni leirbrennsluofn 1 hilla kostar kr. 2.200
Stærri leirbrennsluofn 1 hilla kostar kr. 3.000
Afhending og opnunartímar
- Þú getur skilað verkum til okkar á Krókháls 5 á opnunartíma
- Afgreiðslutími fer eftir álagi, en yfirleitt innan 7–10 daga
- Við sendum SMS þegar brennslan er lokið og verkið tilbúið til afhendingar
Fyrir hverja?
Þessi þjónusta hentar:
- Nemendum í leirlist
- Listafólki
- Heimaiðkendum sem eiga ekki aðgang að brennsluofni
- Allir velkomnir – óháð reynslu!